Breytingaskrá
Hér sést hvað hefur bæst við og breyst í Timr. Aðeins það sem notendur sjá er skráð — við sleppum tæknilegum breytingum að baki tjöldunum.
Greiðslur í gegnum Straum
Kortagreiðslur fara nú í gegnum Straum.
- BetrumbættKortið þitt er nú vistað og gjaldfært í gegnum Straum, íslenska greiðslumiðlun.
Fleiri stjórnendur og lögbundnar síður
Fyrirtæki eru sjaldan með aðeins einn stjórnanda. Nú má bjóða fleirum inn — og skilmálar og persónuverndarstefna eru loksins komin á vefinn.
- NýttBjóddu öðrum stjórnanda inn í fyrirtækið og stýrðu aðgangi teymisins í stillingum.
- NýttPersónuverndarstefna og skilmálar eru komnir á vefinn, á íslensku og ensku.
- NýttEigandi getur skráð hvaða kjarasamningur gildir fyrir fyrirtækið.
- BetrumbættVerðskráin fer nú eftir fjölda starfsmanna og áskriftin segir skýrt til ef valið pláss rúmar ekki alla.
- BetrumbættÚtflutningur á tímaskráningu sýnir hvernig hver dagur flokkast, í þeim einingum sem launakerfið notar.
- LagaðÁskriftin læsist ekki og minnir ekki á greiðslu meðan kortagreiðslur eru ekki virkar.
Mörg fyrirtæki og skýrari tímaskráning
Sami aðgangur getur nú haldið utan um fleiri en eitt fyrirtæki, og tímaskráningin sýnir heilan mánuð í einu.
- NýttStofnaðu annað fyrirtæki og skiptu á milli þeirra beint úr fyrirtækjavalinu.
- BetrumbættÞegar boðið er starfsmanni sem er þegar með Timr-aðgang sést það strax og hann bætist við fyrirtækið.
- BetrumbættTímaskráningin birtir heilan mánuð í einu og býður flýtival á algeng dagsetningarbil.
- LagaðÁskriftin uppfærist sjálf eftir greiðslu — ekki lengur þörf á að endurhlaða síðuna.
Ný greiðslusíða
Greiðsluferlið færðist yfir á nýja greiðslusíðu.
- BetrumbættNý greiðslusíða með öruggari og hraðari staðfestingu.
- LagaðUpplýsingar um fyrirtækið vistast rétt úr fyrirtækjaforminu.
Áskriftir, orlof og starfsstöðvar
Stór uppfærsla: áskriftarsvæði, orlofsstjórnun og starfsstöðvar með opnunartíma.
- NýttÁskriftarsvæði þar sem sjá má stöðu áskriftar og greiðslusögu.
- NýttOrlofsstjórnun: orlofsréttur, orlofsbeiðnir og samþykki stjórnanda.
- NýttStarfsstöðvar með opnunartíma og staðsetningu, valdar beint á vaktir.
- NýttHlaða má upp merki fyrirtækisins.
- BetrumbættNýtt og einfaldara upphafsferli fyrir ný fyrirtæki.