Smáforrit fyrir starfsfólkVæntanlegt fljótlega í App Store og Google Play
Öruggt og þægilegt vaktakerfi
Skipuleggðu vaktir, fylgstu með mætingu og gefðu starfsfólki þínu yfirsýn yfir eigin vinnutíma — allt á einum stað. Timr er hannað fyrir fyrirtæki sem vilja einfalda dagleg verkefni og spara tíma.

Tilbúin/n að einfalda vaktaskipulagið?
Ástæðan fyrir því að ég lagði af stað í þessa vegferð er einföld: Ég hef bæði verið starfsmaður og yfirmaður og unnið með Excel við vaktaskipulag. Þegar ég fór að skoða önnur kerfi sem gætu leyst Excel af hólmi fann ég ekki réttu lausnina. Annað hvort voru sambærileg kerfi of dýr, buðu ekki upp á það sem okkur vantaði eða virkuðu einfaldlega ekki.
Þess vegna bjó ég til Timr: Forrit með einfaldri verðskrá, eiginleikum sem nýtast fyrirtækjum af öllum stærðum og einföldu viðmóti fyrir stjórnendur og starfsfólk.
Eiginleikar
Af hverju Timr?
Timr er hannað til að einfalda vaktaskipulag og vinnutímaskráningu, bæði fyrir stjórnendur og starfsfólk.
- Vaktarplön
- Sveigjanleg vaktarsnið eins og 2-2-3, 5-5-4 eða sérsniðið. Mörg plön í gangi samtímis.
- Stimpilklukka og tímaskráning
- Yfirsýn yfir alla tímaskráningu starfsfólks. Breyta færslum eða bæta við handvirkt.
- Orlofs- og frídagakerfi
- Sjáðu frídagabeiðnir og samþykktu þær eða hafnaðu. Vaktarplanið tekur sjálfkrafa tillit til frídaga.
- GPS-staðfesting
- Tryggðu að starfsfólk stimplist inn á réttum stað með GPS-staðfestingu.
- Tilkynningar og viðvaranir
- Áminningar um vaktir, yfirvinnuviðvaranir, gleymdar stimplanir og fleira.
- Útflutningur gagna
- Flytja út tímaskráningar og launagögn í Excel.
- Vaktabirting
- Búðu til vaktir sem drög og birtu þegar tilbúið. Starfsfólk sér aðeins birtar vaktir.
Verðskrá
Finndu það sem hentar þér
Byrjaðu í dag með 30 daga prufutímabili. Engin skuldbinding.
Timr fyrir teymið þitt
Frítt fyrir minnstu teymin. Dragðu rennuna að fjölda starfsmanna þegar þú stækkar — verðið aðlagast strax.
- Vaktaáætlun & birting vakta
- Stimpilklukka með GPS-staðfestingu
- Orlofs- og frídagakerfi
- Margar starfsstöðvar
- Margir stjórnendur
- Launaútflutningur & Excel
- Íslenskir kjarasamningar
- Starfsmannaapp
- Vaktaskipti & opnar vaktir
- Samstilling við launakerfi
- Sjálfvirk vaktaúthlutun
- Ítarleg skýrslugerð
- Tenging við gervigreind
Algengar spurningar
- Er hægt að prófa kerfið frítt?
Já, þú getur prófað Timr í 30 daga án þess að gefa upp greiðslukortaupplýsingar. Engin skuldbinding og hægt að hætta hvenær sem er.
- Hversu marga starfsmenn get ég skráð?
Verðið ræðst af stærð teymisins — þú velur þrep frá 10 og upp í 100 starfsmenn, og allir eiginleikar fylgja með í öllum þrepum. Þarftu pláss fyrir fleiri en 100 starfsmenn? Hafðu samband og við sérsníðum verð.
- Er til app fyrir starfsmenn?
Starfsmannaappið er væntanlegt í App Store og Google Play. Þangað til notar starfsfólk Timr í vafranum í símanum og getur séð vaktir, stimplað sig inn og út og fengið tölvupóst þegar vaktaplani er breytt.
- Tekur kerfið tillit til íslenskra kjarasamninga?
Já, Timr er hannað sérstaklega fyrir íslenska vinnustaði. Kerfið reiknar sjálfkrafa dagvinnu, yfirvinnu og stórhátíðarkaup í samræmi við íslenska kjarasamninga.
- Get ég skipt um pakka síðar?
Já, þú getur skipt um þrep hvenær sem er. Nýja þrepið tekur gildi strax, en nýja verðið gildir fyrst frá næstu innheimtu — ekkert er innheimt eða endurgreitt þegar þú skiptir.
- Hvernig virkar GPS innstimplun?
Þegar starfsmaður stimplar sig inn staðfestir kerfið að viðkomandi sé innan ákveðins GPS-sviðs frá vinnustaðnum. Stjórnandi stillir staðsetningu og leyfilegt svið í stillingum. Ef starfsmaður er utan sviðs er innstimplun hafnað.